Aflraunafélag Akureyrar -
 
Fréttir
 
 
 
 
 
 
7. feb '10
Akureyrar meistarinn í sjómann 6 feb 2010
 
Núna á laugardaginn 6 feb 2010 héldum við okkar fyrsta mót og var það Akureyrar meistarinn í sjómann.
Skráðir voru 16 keppendur til leiks af öllum stærðum og gerðum. Einna helst kom sigurvegarinn mest á óvart. Þar sem hann lagði menn mun þyngri og stærri
Eingin fyrirfram skráning var á staðnum heldur mættu menn bara og skráðu sig til keppnis
Öll nöfn voru sett í pott og dregið 2 og 2 saman, síðan var sá sem náði best 2 af 3 sem hélt áfram meðann hinn datt út (og var fyrirkomulagð Hægri /vinstri / hægri ).
 
 
Keppendur og úrslit
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kynnir Sigfús Fossdal
Dómari Jón Þór Ásgrímsson
 
 
Alveg hrikaleg barátta var í mönnum  og náðu sumir að berjast í 3 mín með tilheyrandi látum og öskrum, einnig var æsingurinn svo mikill að dómarinn þurfti að stoppa nokkra þar sem stólar og borð voru komnir á fullt skrið og var greinilegt að það var vel af anda í mönnum
En Aflraunafélagið er mjög ánægt með keppnina 16 keppendur og mikið af áhorfendum sem voru á fullu að hvetja menn.
Einnig viljum við þakka Kaffi Akureyri fyrir að hafa lánað okkur aðstöðuna sína og einnig Viking Gym fyrir verðlaunin en sigurvegarinn Jón Fannar Gunnarsson vann mánaðarkort í Viking Gym Iceland
 
 
 
 
30. des '09
Ársþingi lokið. Mótaskrá 2010 komin
Ársþingi lokið hjá A.F.A. nokkrar breytingar voru gerðar, kosið var um aflraunamann og kraftlyftingarmann ársins hjá A.F.A og gerð var mótaskrá fyrir árið 2010.
Byrjað var á að kjósa í stjórn                             
Formaður Jón Þór Ásgrímsson
Vara Formaður Sigfús Fossdal
Gjaldkeri Sólveig Bjarnar
VaraStjórn       Eyjólfur Unnarsson
                       Erlingur Guðmundsson
 
 
Mótaskrá 2010
 
 
6. Febrúar 2010           Akureryarmót í sjómann
20. Mars 2010             Byrjendamót í aflraunum
3. april 2010                Íslandsmeistaramót í drumbalyftu
15. mai 2010               Press and pull (loggur og dead)
10. júli 2010                Aflraunameistari Íslands
18 sept 2010                Bikarmót í drumbalyftu (Suðurland)
26 des 2010                 Jólamót A.F.A. & Viking gym í bekkpressu
 
 
 
 
Farið var yfir ársreikninginn.
Bætt var inní reglunar að “Allir keppendur hjá Aflraunafélagi Akureyrar séu á sinni eigin ábyrgð á mótum”.
Kosið var Aflrauna- og Kraftlyftingamann ársins
 
 
Aflraunamaður ársins 2009
Jón Þór Ásgrímsson
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kraftlyftingamaður ársins 2009
Ingibjörg Óladóttir
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Og að lokum Óskum við ykkur gleðis árs og kærar þakkir fyrir það liðna
-Stjórn A.F.A.
 
 
28. des '09
Kiddzenegger Bestur á bekknum
Núna 27 des hélt A.F.A. sitt fyrsta mót í bekkpressu í samstarfi við Viking GYm Iceland. og voru 19 keppendur mættir til leiks.
Kristinn ari Hinriksson stóð uppi sem sigurvegari á mótinu með 227.5kg
 
 
 
Þyngd - Nafn - Lyftur
 
-67.5
(63,8) Jón Guðni Þórarinsson 85 - 85 - 92.5
 
-75
(70.7) Pascal Pálsson 105 - 110 - 115
(72.2) Aðalgeir Hilmarsson 85 - 90 - 90
 
-82.5
(77.8) Hilmar Henning 90 - 95 - 105
(82) Ívar Helgi Grímsson 90 - 95 - 105
(79.7) Erlingur Guðmundsson 120 - 130 - 130
 
-90
(87.6) Þóroddur Einar Þórðarsson 105 - 120 - 125
(88.6) Bjarni Grétar Jónsson 160 - 170 - 175
(87.8) Halldór Valur Stefánsson 75 - 82.5 - 90
(84.6) Atli Viðar Jónsson 80 - 90 - 95
(89.5) Sigurður Kristján Grímlaugsson 85 - 90 - 90
 
-100
 (100) Árni Freyr Árnarsson 195 – 200 - 210
 (92.5) Ómar Þorri Gunnlaugsson 125 – 137.5 - 150
 
-110 
(101.1) Snorri Guðjónsson 120 – 130 - 135
 
-125
(114.3) Elís Hólm Þórðarson 180 – 190 - 200
(117.6) Páll Pálsson 170 – 185 - 200
 
-140
(128.5) Kristinn Ari Hinriksson 200 – 215 – 227.5
(132.1) Erling Tom Erlingsson  120 – 120 - 130
 
+140
(150) Jóhannes Atlason 90 – 100 - 115
 
 
 
Stigverðlaun
Drengja flokkur  Bjarni Grétar Jónsson
Unglinga flokkur: Kristinn Ari Hinriksson
Opinn flokkur:  Árni Freyr Árnason
 
Stiga hæstur Kristinn Ari Hinriksson
 
 
 
 
 
22.des '09
Viking gym gefur  bestu 3. verðlaun
 
Á Jólamóti A.F.A. og Viking Gym munu þeir sem eru stigahæstir í sínum flokk þ.e drengja ulinga og opnum flokki Vinna sér inn mánaðarkort í Viking Gym. sem er einmitt mótsstaður á mótinu okkar. Fyrir þá sem ekki vita er Viking Gym staðsett á Tryggvabrautt 22 á 3 hæð (fyrir ofan axelsbakarí)
 
 
21 Des '09
Allir keppendur á Jólamóti A.F.A. og Viking Gym 27 des '09
 
Minni alla keppendur á að vigtun er kl 13:00 uppí Viking Gym og þurfa keppendur að greiða 1000kr keppnisgjald í vigtuninni.
Keppnin byrjar svo kl 15:00
 
Kvenna flokkur
 
 
-56
Sólveig Bjarnar
 
 
Karla flokkur
 
 
-67.5
Jón Guðni Þórarinsson
 
-75
Hilmar Brynjólfsson
Aðalgeir Hilmarsson
 
-82.5
Hilmar Henning
Atli Viðar Jónsson
Erlingur Guðmundsson
 
-90
Ómar Þorri Gunnlaugsson
Ívar Helgi Grímsson
Þóroddur Einar Þórðarsson
Bjarni Grétar Jónsson
Halldór Valur Stefánsson
Eiríkur Fannar Traustason
 
-100
Einar Hauksson
Árni Freyr Árnarsson
Snorri Guðjónsson
Sigurður Kristján Grímlaugsson
 
-125
Elís Hólm Þórðarson
Páll Pálsson
 
-140
Kristinn Ari Hinriksson
Erling Tom Erlingsson
 
+140
Jóhannes Atlason
 
 
 
 
21 Nóv '09
Jólamót A.F.A. í bekkpressu 27 des
Aflraunafélag Akureyrar í samstarfi við Viking Gym kynnir Jólamót A.F.A. í bekkpressu 27. des.
Keppnisgjald er 1000 kr og er vigtun klukkan 13:0.
Mótið byrjar svo kl 15:00
Keppt er eftir leikreglum WPF.
Viking Gym er á Tryggvabraut 22. (3hæð) á Akureyri
 
Skráning er hafin á
fossdal83@hotmail.com.
Fyrirspurnir berist til
Sigfúsar í síma 8669049.
 
 
 
 
 
 
4. okt '09
Víkingastelpur Norðursins.
Í dag hélt A.F.A. sína fyrstu kvenna aflraunaæfingu. og þrátt fyrir snjó og frost stoppaði það ekki stelpunar á að mæta í superyoke og dekkjaveltu.
Eftir það fórum við niðri Viking gym og tókum drumbalyftu og 18"deadlift.
 
Mættu 6 stelpur í átökin og voru það Anna Louise                                                                                                                                                                        , Birgitta, Björg, Ingibjörg, Sólveig Bjarnar og Sólveig. Flestar að prófa þessar greinar í fyrsta skipti en stóðu sig einsog hetjur í frostinu
Aflraunafélag Akureyrar vill þakka kærlega Blikkrás, Gúmmívinnsluni á Akureyri og Viking gym fyrir að hafa aðstoðað við þessa æfingu.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
29. sept '09
Kvenna Aflraunaæfing á sunnudaginn
 
Jæja nú er sumarið að fara enda og gott sumar að baki. A.F.A. er búið að halda Ísl.meistaramót í drumbalyftu og Aflraunameistarann, einnig sáum við um Langanes Víkinginn en það er almennings keppni sem haldin er á Kátum dögum í Þórshöfn. Gengu öll mótin vel fyrir sig og er þetta bara góðsviti fyrir næsta ár og vonumst við til að næsta ár verði en betri hjá A.F.A.
 
Eins og margir vita að þá er Gemma Magnússon og Thelma Ólafsdóttir að halda Sterkustu Konu Íslands núna 17 okt í Vetragarðinum í Smáralind og síðast þegar við heyrðum þá eru 21 stelpa skráð í keppnina og eru það stelpur af öllum stærðum og gerðum. Gemma bíður uppá Aflraunaæfingar fyrir keppendur þessa móts í SUPER GYM en fyrir þær sem hafa áhuga á að keppa þá bíður A.F.A. uppá aflraunaæfingar fyrir stelpunar sem eru á Norðurlandinu. og stefnum við á að halda kvenna aflraunaæfingu núna á sunnudaginn næst þannig að ef áhugi er fyrir hendi endilega hafa þá samband við Jón Þór í síma 868-2085 eða senda okkur mail á afa@aflraunir.net
 
 
 
15 júlí '09
Sólveig vann réttstöðuna á Sunnumótinu.
 
Gjaldkerinn okkar hún Sólveig Bjarnar keppti nuna um helgina á Sunnumótinu þar sem keppt er í bekk og réttstöðu, svo kallað Push and pull mót. En þar keppti hún í -56kg flokki. Lenti hún þar í öðru sæti með 140kg í samanlögðu en hún tók 40-100 (bekkur - Réttstaða). 
Þar bætti hún sig um 20kg í réttstöðunni frá guttormsmóti Metals 2008 og vantaði 8kg uppá að hún mundi ná tvöfaldri líkamsþyngd í réttstöðu og fyrir þá lyftu vann hún stigabikarinn fyrir réttstöðuna, og óskum við henni til hamingju með árangurinn á Sunnumótinu.
 
 
Hérna er Sólveig að rífa 100kg upp aðeins 54kg sjálf
 
Sunnumótið er fyrst sinnar tegundar á Íslandi en þetta mót er eingöngu ætlað konum, og mættu rúmlega 20 stelpur til að taka á þvi.
Mótið er til heiðurs Sunnu Hlínar sem var að keppa á sínu fyrsta Power móti en hefur keppt í fitness áður fyrr, Sunna Hlín heldur úti vefsíðuna www.vodvafikn.net
Rúnar "Fjósi" Friðriksson og KFA eiga hrós skilið fyrir mjög flott mót, það var alveg til fyrirmindar.
 
 
22. juni '09
Myndir frá Aflraunameistara Íslands 2009
 
Myndir frá Aflraunameistara Íslands eru komnir inná Mynda linkinn hérna vinstra megin.
 
You need Flash Player in order to view this.
Aflraunameistari Íslands 2009
Aflraunafélag Akureyrar hélt Aflraunameistara Íslands 20 juni 2009 á Akureyri.Keppendur voru Sigfús FossdalÚlfur Orri PéturssonJón Þór ÁsgrímssonÁrni Freyr StefánssonHallgrímur Pálmi Stefá...
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
20. juni '09
Sigfús ver titilinn annað árið í röð
 
Alraunameistari Íslands var haldinn núna í dag laugardagainn 20 juni. Byrjað var hæfilega seint útá flugvelli vegna mikillra pælinga hjá fugvirkjum á svæðinu á því hvernig væri hægt að draga vélin áfram þar sem að hún er hönnuð til að vera dregin aftur á bak.
Taka má fram að aldrei komst í það að prófa þessa grein fyrir mótið og er þetta í annað skiptið sem reynt er að draga flugvél á íslandi í aflraunakeppni.fyrstu 3 keppendur komu vélinni ekki úr sporunum. Þannig að þá var ákveðið að breyta greininni yfir í hönd fyrir hönd á 25m en fyrir valinu var Ford F150 pick-up og var pallurinn fylltur af krökkum af svæðinu. Jón Þór vann þá grein en litlu mátti muna hjá Jóni Þóri og Sigfúsi
 
 
 
 
 
 
  1. Jón Þór 32.10 sek
  2. Sigfús 33.10 sek
  3. Hallgrímur 35.30 sek
  4. Árni freyr  36.30 sek
  5. Úlfur orri 37.19 sek
 
Mótið hélt svo áfram niðri bæ og var önnur greinin uxaganga eða superyoke, Þar var hart barist þar sem Úlfur byrjaði á að setja góðann tíma á 25m brautina, þar á eftir fylgdi Árni sem var með þvílíkt keppnis skap og tók hann margoft upp og hélt endalaust áfram en náði ekki endamarkinu. Hallgrímur sem var að keppa í fyrsta skipti í uxagöngu fór með hana nokkur spor. Þar á eftir fylgi Sigfús en hann og Úlfur voru þeir einu sem náðu alla leið þaðan endaði Jón Þór
 
  1. Sigfús 20.8 sek
  2. Úlfur 25.5
  3. Jón Þór 19.5m
  4. Árni freyr 10.1
  5. Hallgrímur 0.5m
 
Drumbalyftan tók þar við en keppt var á repsum með 100kg drumb. Mótið var keyrt nokkuð hratt í gegn þannig að ekki voru allir bunnir að jafna sig í löppunum eftir uxagönguna og bitnaði það dálítið á sprengjunni í drumbinum.
 
  1. Sigfús 5 reps
  2. Árni 4 reps
  3. Úlfur 2 reps
  4. Jón Þór 0 reps
  5. Hallgrímur 0 reps
 
Bændagnagan var þar næst og var ákveðið að stytta hana vegna þreytu í mönnum niðri 25m á tíma. Úlfur setti mjög góðan tíma fyrir Sigfús enda skokkaði Úlfur með bændagönguna einsog ekkert væri. Sigfús gaf sig allan í þetta enda að hans eigin sögn hefur hann aldrei hlaupið jafn hratt hvorki með bændagöngu eða án en var samnt ekki nóg til að hafa skokkið hjá Úlfi.
 
  1. Úlfur 10.5 sek
  2. Sigfús 11.9 sek
  3. Jón Þór 17.8 sek
  4. Árni freyr 42.5sek
  5. Hallgrímur kláraði ekki
 
Næsta grein var hin Nyja Fingal Finger en hún var heldur ung í þetta skiptið þar sem að þetta er í fyrsta skipti sem hún hefur verið notuð á Íslandi í Aflraunakeppni En einginn keppendana náði að klára greinina fyrir en að fjórir keppendur réðust á hana og hentu henni yfir í ofur anda. En þessi grein byggist á því að taka 6m langt og 150kg þungt rör upp frá jörðinni uppí 90° og þar yfir þangað til rörið er komið í 180°
 
Loka staða Keppenda var
 
  1. Sigfús Fossdal (annað árið í röð)
  2. Úlfur Orri Pétursson
  3. Jón Þór Ásgrímsson
  4. Árni Freyr Stefánsson
  5. Hallgrímur Pálmi Stefánsson
 
 
Aðal dómari og Kynnir Þorvaldur Ásberg Kristbergsson
Aðstoðardómari og tímavörður Kristinn Ari Hinrikson
Tímaverðir Halldór Arinbjarnar
               Ingibjörg Óladóttir
 
Að lokum viljum við þakka Keppendum, aðstoðarmönnum og áhorfendum fyrir að hafa komið og vonandi skemnt sér með okkur.
Einnig viljum við þakka vinum okkar í KFA (Kraftlyftingarfélagi Akureyrar) fyrir lán á lóðum.
Og að lokum viljum við þakka kærlega öllum styrktar aðilum mótsins
 
Sandblástur og Málmhúðun
Hringrás
66°N
Jón sprettur
Flugsafn Íslands
B.S.A
Vífilfell
Byko
Bílvirki Akureyri
 
Myndir og video af mótinu koma inn von bráðar
 
Einnig viljum við nýta tækifærið og kynna nýja logo Aflraunafélags Akureyrar
 
 
 
 
 
 
 
19. juni'09
Aflraunameistari Íslands 2009
Nú er kominn endanlegur keppendalisti og listi yfir greinana. Til stóð að fleiri keppendur mundu vera enda vorum við komin með mjög sterkan hóp manna en einsog margir vita þá eru þeir flest allir meiddir.
Keppendur í ár eru samnt ekki af verri kantinum og er meirihlutinn að stíga sín fyrstu spor í aflraunum
 
Keppendur:
Úlfur Orri Pétursson
Sigfús Fossdal
Árni Freyr Stefánsson
Jón Þór Ásgrímsson
Hallgrímur Pálmi Stefánsson
 
Greinanar í ár eru heldur ekki af verri endanum en byrjað verður laugardaginn 20 juni kl 12 útá flugsafni Íslands (www.flugsafn.is) í Flugvéladrætti. og förum svo þaðan kl 14:00 niðri miðbæ Akureyrar og tökum þar restina af greinunum. Þar til dæmis er grein sem hefur aldrei verið notuð í aflraunakeppni á Íslandi en það er Fingal finger.
 
Greinar:
Flugvéladráttur 25m á tíma
Uxaganga (superyoke) ca 280kg 30m á tíma
Drumbalyfta (loglift) 100kg á reps
Bændaganga (farmers walk) 2x120kg á 50m
Fingal Finger á reps
 
 
03. juni '09
Ingibjörg Óladóttir setti 3 Evrópumet
Ingibjörg og Sigfús Fossdal eru núna úti finnlandi að keppa í EM hjá WPC. En ingibjörg er ein af stofnendum A.F.A,  
Hún tók í dag tölunar 205- 107.5 - 193 = 505.5 og setti hun 3 Evrópumet. Óskum við öll henni til hamingju með þennan árangur.
 
 
01. juni '09
Greinar á Aflraunameistar Íslands 2009
Komnar eru 4 ákveðnar greinar á mótið en þær eru:
Flugvéladráttur (25m braut á tíma)
Bóndaganga (2x120kg á vegalengd)
Drumbalyfta
Uxaganga
 
22 mai '09
Aflraunameistari Íslands 2009
Nú verður annað árið í röð haldinn þessi keppni sem er búin að vera í dvala síðan 1989 (ef ég man rétt).
Í fyrra þá var hun haldin í fyrsta skiptið eftir dvalan, og var það Magnús Ver Magnússon og Sigfús Fossdal sem tóku sig til við að blása lífi í hana.
 
Sjö keppendur mættu á svæðið og af þeim var einn frá USA hann Adam Keep, og var það okkar eigin Formaður sem vann í fyrra.
Mótið var haldið um verslunarmannhelgina á Akureyri 2008 en verður núna haldin 20 juni 2009.
 
Núna í ár verður það svo Aflruanafélag Akureyrar sem hekdur utan um keppnina og einsog áður kom fram verður hun haldin 20 juni á Akureyri.
Greinanar eru ekki alveg búið að ákveða en þeir sem koma til greina eru:
 
  • Bóndaganga
  • Drumbalyfta
  • Hönd fyrir hönd
  • Trukka dráttur
  • Super yoke
  • Atlas steinar á reps
  • Hleðslu grein
  • Deadlift
 
En auðvitað er þessar greinar birtar með fyrirvara um breytingar
 
 
Þeir sem hafa áhuga á að keppa eða hafið einhverjar spurningar sendið okkur Póst á afa@aflraunir.net
 
 
 
 
 
 
 
 
12. april '09
 
Heisi fyrsti Íslandsmeistari í drumablyftu
 
 
Þá er fyrsta mót Aflraunafélags Akureyrar lokið, Hrikalegar lyftur og ótruleg tilþrif,
Viljum við líka byrja á að  þakka vinum okkar og nágrönnum í Kraftlyftingarfélagi Akureyrar (KFA) fyrir að hafa lánað okkur æfingaraðstöðu sína fyrir upphitun og lóð fyrir mótið, einnig Lyftingarfélag Akureyrar fyrir lán á 2 dómurum.
12 keppendur voru skráðir á mótið og var smá um byrjunar örðuleika en nokkur mannaskipti voru fyrir mót Valdi bolla var meiddur í olboganum, binni hætti við  en við fengum 2 auka menn inn til að halda 12 keppendum, svo um morguninn var Arnar loggur sem átti að vera þulur orðinn mállaus af hálsbolgu.
 
 
En úrslitin eru þessi: (klikkið á til að fá stærra)
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
O=  hvítt (gild)
X = rautt (ógild)
 
Kristinn Óskar Haraldsson (Boris) átti hrikalega létta 180kg lyftu, en í gleðinni gleymndann sér aðeins og sleppti drumbnum uppi sem gerði lyftuna ógilda, (þarft að fylgja loggnum niður að kassanum.
Heiðar Geirmunds (Heisi) átti mjög flotta 175kg lyftu sem trygði honum sigur og Íslandsmetið í drumbalyftu, en að eigin sögn á leiðinlegan hátt miðað við hvernig fór fyrir Boris. Heisi var sá eini sem náði gildri lyftu í 3 umferð og var þvi einn sem mátti gera 4 tilraun uppá met og klikkaði hann á hrikalegri anda lyftu uppá 185kg.
Stefán Sölvi tók 170kg og klikkaði á 180kg lyftunni. En einsog hann sagði “þetta er bara byrjunin” og miðað við kraftana í strákunum á þessu móti þá verða þeir hrikalegri á næsta Íslandsmeistaramóti, og stutt í 200kg hjá Boris og Heisa.
 
 
Í fyrstu lyftunni hjá Sigfús fossdal þá stóð til að hann ynni tilþrifa bikarinn þar sem hann missti hann bakvið sig og drumburinn rúllaði útaf sviðinu fyrir aftann. En strax í annari umferð var Ólafur Valur staðráðinn í að toppa Sigfús þannig að hann fór sjálfur og rúllaði útaf aftan af sviðinu, sem betur fer náðu stangarmenn að stoppa drumbinn áður en hann fór á eftir honum niður.
 
 
Gísli Rúnar var að keppa á sínu fyrsta aflraunarmóti þarna og sást að hann er mjög efnilegur pressari, en hann tók 110 og klikkaði á 120,  og skemntilegt að benda á að hann tók eina æfingu með drumb fyrir mótið og þar áður hafði hann aldrei tekið í hann.
 
 
Mótið Heppnaðist á allan hátt mjög flott, hrikalega öflugir keppendur og gömul kempa sem kynnir en það var einginn annar en Torfi Ólafsson krafta og aflraunamaður sem bjargaði okkur á mjög stuttum fyrirvara.
 
 
Dómarar mótsins voru þeir:      Elvar Óskarsson
                                                Tryggvi Heimisson
                                                Erlendur Jóhannesson
 
 
Ritari                                        Ingibjörg Óladóttir
 
 
Aflraunafélag Akureyrar vill þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkar að gera þetta mót mögulegt og einnig öllum keppendunum og áhorfendunum sem mættu á svæðið.
 
 
 
 
09 april  '09
Loka keppenda staða
Smá breytingar eru komnar á keppendalistann, En núna er komin endanlegur keppendalisti
Brynjar Karl Guðmundsson -hætti við-
Árni Freyr Gestson og Kristinn ari Hinriksson Bættust við
Þannig að loka listi er
 
1.  Stefán Sölvi Pétursson
2.  Kristinn Óskar Haraldsson (boris)
3.  Sigfús Fossdal
4.  Páll Logason
5.  Þorvaldur Kristbergsson (Valdi bolla)
6.  Heiðar Geimundsson (heisi)
7.  Orri Geirsson
8.  Ólafur Valur Guðjónsson
9.  Gílsi Rúnar Víðisson
10. Árni Freyr Gestson
11. Kristinn Ari Hinriksson
12. Jón Þór Ásgrímsson
 
Viljum líka benda ykkur á að hérna er linkur inná reglunar sem við munum notast við á mótinu http://www.loglift.org/rules/
 
07 april '09
 
Styrktaraðilar að Íslandsmeistaramóti í drumbalyftu
Þó svo að erfiðir tímar séu búnir að ganga yfir landið þá eru nokkur fyrirtæki sem eru búin að rétta út smá hjálpar hönd við gerð mótsins og erum við mjög þakklát öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn.
 
 
 
 
 
 
 
Medico.is
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Jón Sprettur
464-6464
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Vélsmiðjan
skemmtistaður
 
 
 
 
04 april '09
 
Skráningu lokið í Íslandsmeistaramót í drumbalyftu
Nú er skráningu lokið í fyrsta mót A.F.A. Því miður gátum við ekki haft -105kg flokkin en vonandi verður hægt að fá næga þátttöku á næsta ári í -105kg flokkinn.
Skráðir eru 12 keppendur á mótið.
En mótið er á laugardagann 11 april ekki er en kominn fastur tími á það en ca kl 15:00 er gefinn upp.
Og mætti segja að miðað við keppendafjöldann verður þetta þrusu syning. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á þessa fyrstu aflraunakeppni ársins og fyrstu keppni A.F.A.
 
 
19 Mars '09
 
Keppendur Íslandsmótsins í Drumbalyftu
 
Nú er fyrsta mót A.F.A að fara renna í garð og er nú þegar kominn flottur keppenda listi. Mótið verður haldið laugardaginn 11 april uppí íþróttarhöll á Akureyri.
Vegna skorts á léttari keppendum verðum við því miður að fella niður -105kg flokkinn, þannig að í staðinn er bara einn opinn flokkur í staðinn fyrir 2 flokkana
 
Keppendur:
 
Stefán Sölvi Pétursson
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kristinn Óskar Haraldsson (Boris)
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Sigfús Fossdal
 
 
 
 
 
 
 
 
Jón Þór Ásgrímsson (litli Jón)
 
 
 
 
 
 
 
 
Páll Logason (Fermeterinn)
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þorvaldur Kristbergsson (Valdi Bolla)
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Heiðar Geirmundsson (Heisi)
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Orri Geirsson
 
 
 
 
 
 
 
 
Ólafur Valur Guðjónsson
 
 
 
 
 
 
 
 
Brynjar Karl Guðmundsson
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Gísli Rúnar Víðisson (Stórbóndinn)
 
 
 
 
 
 
 
 
Vill minna á að enþá er tími til að skrá sig á mótið. Og ef einhverjar spurningar koma upp þá endilega sendið okkur mail á afa@aflraunir.net.
 
 
 
 
08 Mars '09
Umboð fyrir Metal á Íslandi.
 
 
Fyrir stuttu síðan hafði Jóhanna Eiríks samband við mig og bauð mér að taka við umboðinu fyrir Metal á Íslandi, þar sem hún hafði hug á að hætta með það. Mér leist mjög vel á það og náðum við góðu samkomulagi um að ég tæki við af henni og er ég þegar kominn í fullt samband við Minnu og Ano hjá Metal í Finlandi.
Ég mun sjá um að panta frá þeim vörur, fyrir þá sem hafa áhuga, en þau verð sem ég ætla að bjóða uppá verða frekar ódýrari en þau sem fólk myndi fá með því að panta sjálft. Best er að hafa samband við mig í síma 866-9049 eða á emailið fossdal83@hotmail.com.
Á síðunni http://www.gometal.com er hægt að sjá uppá hvað verið er að bjóða.
Margir af bestu lyfturum heims nota vörur frá Metal, til dæmis tók ég sjálfur þyngstu lyftu Íslandssögunnar á bekk í slopp frá þeim, og Benedikt Magnússontók 440 kg í réttstöðulyftu sem var þyngstalyfta mannkynssögunar í deddi, í réttstöðulyftubrók frá þeim.
Hafið það gott.
 
Með powerkveðju, Sigfús Fossdal
 
 
 
 
26 Febrúar '09
Bændagangan tilbúin.
 
Í gær var farið í það að vinna aðeins í græjum félagsins. Farið var í að þyngja Bændagönguna, og voru þær settar uppí 120kg hvor (og einsog sést á myndinni er þetta löggild vigt). Viljum við þakka kærlega Sandblástur og Málmhúðun  fyrir að skaffa efni í þynginguna og einnig viljum við þakka Valgarði Óla Ómarssyni fyrir að skaffa okkur vigt og rosalega þolinmæði.
 
 
 
 
14 Febrúar '09
Reglur Íslandsmeistaramóts í drumbalyftu
 
 
  • Keppt verður með Drumb sem er í eigu A.F.A.
  • Keppt verður uppá mestu þyngd.
  • Hver keppandi fær 3 lyftur.
  • Drumburinn situr á dekkjum
  • Keppandi hefur 60 sek. til að klára lyftuna
  • Þegar keppandinn hefur komið sér fyrir spyr dómari "ertu tilbuinn" þegar keppandi hefur svarað segir dómarinn "byrja" og þá fer tíminn á stað.
  • Taka þarf drumbinn frá golfi og upp fyrir höfuð með læsta olboga og hné, þá gefur dómarinn merkið "niður" og þarf þá að taka drumbinn niður með stjórn til að klára lyftuna
  • Ef ekki tekst að ná einni gildri lyftu þá fellur keppandinn úr keppni
  • Sé keppandi 10kg frá íslandsmetinu í 3 lyftu á hann rétt á 4 lyftu til að bæta metið um lámark 2,5kg.
  • Ekki er leyfinlegt að hvíla drumbinn ofaná hausnum
  • Leyfður búnaður er belti, uliðsvafningar og magnesium
  • Olboga vafningar eru ekki leyfðir
 
Allar spunringar eða ábendingar má senda í afa@aflraunir.net
 
06 Febrúar '09
Fyrsta mót A.F.A.
 
Nuna er fyrsta mót Aflraunafélags Akureyrar ákveðið. Við ætlum að taka forskot á sæluna og hafa Íslandsmótið í drumbalyftu. Sem er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en eitthvað hefur verið keppt í þessu útí í heimi. Mótið verður nuna um páskana 10-11 april
Stefnt er að hafa þetta sem árlegan viðburð og vonumst við eftir sem bestu þátttöku á mótið. Nóg verður að gerast í kringum þessa helgi þar sem mótið mun vera á sama svæði og Íslandsmóts IFBB í fitness og vaxtarrækt.
Skráning og upplysingar eru inná Mótskrá og Úrslit hérna vinstra megin
 
Ef þið hafið einhverjar ábendingar eða fyrirspurnir þá endilega hafið samband afa@aflraunir.net
 
3. februar '09
Stofnun Aflraunafélags Akureyrar.
 
Aflraunafélag Akureyrar var stofnað á haustmánuðum 2008, á sama tíma og mikil vandræði og neikvæðni riðu yfir landsmenn í fjármálavandræðum þjóðarinnar ákváðum við að horfa frekar fram á veginn og stofnuðum nýtt félag. Félag sem hefði að leiðarljósi að byggja upp aflraunir og kraftlyftingar á Akureyri og Íslandi öllu. Við erum óháð öllum öðrum, og eru allir velkomnir á mót á okkar vegum, og félagsmönnum okkar frjálst að keppa hvar annarsstaðar sem þeir kjósa. Við ætlum að koma okkur upp tækjum til æfinga og keppni í sportunum, og halds mót, bæði fyrir heimamenn og fyrir allt landið. Við höfum í hyggju að halda Aflraunameistara Íslands, Aflraunameistara Akureyrar, Íslandsmótið í drumbalyftu, sem og uppi eru hugmyndir um keppni fyrir meistara meistarana í Kraftlyftingum og framhaldsskóla keppni í aflraunum. Við erum opin fyrir öllu og ætlum að reyna að byggja félagið upp þannig að hagsmunir sportsins gangi fyrir, en ekki hagsmunir einstaklinga.
 
Endilega verið sendið okkur fyrirspurnir um það sem ykkur langar að vita, og verið ávalt velkominn á mót. Verið heldur ekki hrædd við að leita ráða, það eru allir hjá okkur tilbúnir að rétta fram hjálparhönd.
 
Kær kveðja Sigfús Fossdal, formaður AFA.
 
2. februar '09
Aflraunafélag Akureyrar komin með heimasíðu.
Nú er síðan hjá Aflraunafélagi Akureyrar í vinnslu þannig að endilega fylgist með.  
 
 
 
 
 
Powered by Vistaprint. Website Hosting for Small Businesses.