Aflraunafélag Akureyrar -
 
LÖG AFLRAUNAFÉLAGS AKUREYRAR
 
1. gr. Lögsaga og valdmörk AFA.
1. mgr. AFA er fyrst og fremst félagasamtök sem hafa að markmiði að aðstoða félagsmenn í að koma upp góðri æfingar aðstöðu og tækjum, og styðja félagsmenn í að ná árangri í sinni íþrótt.
2. mgr. Félagsmönnum er frjálst með öllu að keppa hvar annarsstaðar sem þeir kjósa, sem og að vera félagsmenn í öðrum félögum.
3. mgr. Kraftlyftingar hjá AFA munu ekki hafa aðild að neinu sambandi, en keppt verður eftir leikreglum WPF.
2. gr. Félagsaðild.
1. mgr. AFA er samband einstaklinga, er gerast aðilar að því gegn greiðslu árgjalds, er ársþing ákveður hverju sinni. Einungis löglegir, og skuldlausir meðlimir geta keppt undir merkjum AFA og á mótum hjá AFA. Árgjaldið þarf að greiða tveimur mánuðum fyrir þingið.
2. mgr. Þegar menn gerast félagsmenn fer nafn þeirra í félagaskrá. Á þeirri skrá verða menn svo áfram árið eftir, og þegar þeir greiða ársgjöld verða þeir merktir sem skuldlausir félagsmenn. Þó menn missi úr ár, þar sem þeir ekki greiða félagsgjöld vegna óútskýrðra þátta fara menn ekki af félagaskrá heldur haldast þar inni sem óvirkir félagsmenn og munu því ekki hafa atkvæðisrétta á ársþingi. Vilji menn skrá sig úr félaginu verða þeir að gera það skriflega. Félagaskrá skal vera í höndum gjaldkera þar sem hann sér um að veita ársgjöldum móttöku.
3. gr. Starfsvið og starfsemi AFA.
1. mgr. Starf AFA er í meginatriðum:
a) Að vinna að uppbyggingur aflrauna og kraftlyftinga á Norðurlandi.
b) Halda mót, bæði í aflraunum og kraftlyftingum, bæði fyrir heima menn og á landsvísu.
4. gr. Stjórnvaldsstofnanir AFA.
1.      mgr. Málefnum AFA stjórna í þessari röð:
a)      Ársþing AFA.
b)      Stjórn AFA
5. gr. Ársþingið.
1.mgr. Ársþingið fer með æðsta vald AFA.
2. mgr. Þingið sitja skráðir og skuldlausir aðilar að sambandinu.
3. mgr. Þingið skal árlega haldið í desember. Skal það auglýst með eins mánaða fyrirvara. Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn AFA minnst 14 degi fyrir þingið. Þá skal stjórn AFA tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins ásamt tillögum og lagabreytingum, sem borist hafa í síðasta lagi 7 dögum fyrir þing.
4. mgr. Ársþingið er löglegt, ef löglega hefur verið til þess boðað. 
6. gr. Atkvæðaréttur á ársþingi.
1. mgr. Á þinginu hafa fulltrúar einir atkvæðisrétt, en auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt:
 
a)      Stjórn AFA og varastjórn.
b)      Fastir starfsmenn AFA.
c)      Allir nefndarmenn AFA.
2. mgr. Auk þess getur stjórn AFA boðið öðrum aðilum þingsetu, ef hún telur ástæðu til.
3. mgr. Hver fulltrúi hefur einungis eitt atkvæði.
7. gr. Aukaþing.
1. mgr. Aukaþing má halda, ef nauðsyn krefur eða helmingur sambandsaðila óskar þess. Alla boðunar- og tilkynningafresti til aukaþings má hafa helmingi styttri, en til reglulegs þings.Á aukaþingi má ekki gera laga- og leikreglnabreytingar og ekki kjósa stjórn, nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum. Að öðru leyti gilda um það sömu reglur og um reglulegt ársþing.
2. mgr. Aukaþing skal halda innan tveggja vikna eftir að skrifleg krafa berst stjórn AFA eða er birt opinberlega með sannanlegum hætti vegna brota sjórnar AFA og um það aukaþinghald gilda að öðru leiti reglur ársþings.
8. gr.Störf ársþings AFA.
1. mgr. Störf þingsins eru:
1. Þingsetning.
2. Skilríki fulltrúa lögð fram.
3. Kosinn þingforseti og þingritari.
4. Ársskýrsla lögð fram og rædd.
5. Reikningar lagðir fram og ræddir.
6. Fjárhagsáætlun lögð fram.
7. Ársgjöld ákvörðuð.
8. Rætt um framkomnar tillögur og atkvæði greidd um þær.
9. Stjórnarkjör.
10. Kjör trúnaðarmanns félaga.
11.Kosning aflraunamanns og kraftlyftingamanns ársins.
12.Önnur mál.
13.Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
14.Þingslit.
2. mgr. Fái fleiri en þeir sem kjósa á jafnmörg atkvæði, skal kjósa um þá á ný bundinni kosningu. Verði þeir enn jafnir, ræður hlutkesti. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Þingið getur með 2/3 atkvæðum viðstaddra fulltrúa leyft að taka fyrir mál, sem komin eru fram eftir að dagskrá þingsins var send sambandsaðilum.
9. gr. Stjórn AFA
1. mgr. Stjórn AFA skipa 3 menn, formaður, varaformaður og gjaldkeri. Kosning skal bundinni leynilegri kosningu til eins árs í senn. Formaður er kosinn fyrst og síðan varaformaður svo gjaldkeri. 2 skulu svo kosnir í varastjórn.
2. mgr. Varamenn koma inn, ef aðalmenn forfallast í þeirri röð, sem þeir eru kosnir. Stjórninni er heimilt að ráða launað og ólaunað starfsfólk. Reikningsár félagsins er almanaksárið.
10. gr. Starfssvið stjórnar AFA.
1. mgr. Starfssvið stjórnar AFA er:
a) Að framkvæma ályktanir kraftlyftingaþingsins.
b) Að vinna að eflingu kraftlyftinga og aflrauna á norðurlandi, og á landinu     öllu..
c) Að líta eftir því að lög AFA séu virt.
d) Að setja nauðsynleg bráðabirgðaákvæði.
11. gr. Trúnaðarmaður félagsmanna.
Á ársþingi skal kosinn trúnaðarmaður. Starf hans fellst í því að keppendur og aðrir félagsmenn geti leitað til hans hafi þeir eitthvað við störf stjórnar að setja eða einfaldlega vilja koma einhverju á framfæri án þess að þurfa að gefa upp hver hann er óski hann svo. Trúnaðarmanninnum er skilt að þaga með öllu um hverjir hafa leitað til hans, og ber skilda til að koma málefnum sem til hans er leitað með til stjórnar AFA. Þetta þýðir þó ekki að félagsmönnum sé óheimilt að taka sín mál upp sjálfir við stjórn, heldur er þetta bara varnagli fyrir þá sem óska að halda nafni sýnu frá athugasemdum.
12. gr. Valdsvið formanns AFA til fundarboðunar og stjórnun stjórnarfunda.
1. mgr. Formaður AFA boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim.
13. gr. Brot á lögum og samþykktum AFA.
1. mgr. Gerist aðili brotlegur við lög og samþykktir félagsins og virðir ekki reglur þess, getur stjórn félagsins vísað honum úr sambandinu.
2. mgr. Ákvörðun stjórnar um brottvísun má skjóta til ársþings, sem getur ógilt hana eða staðfest.
14. gr. Réttindi manna til að vinna titla.
1. mgr. Einungis aðilar búsettir norðanlands geta orðið meistarar á Sterkasti Maður Norðurlands, og kraftlyftingamótum sem vísa til staðsettnignar félagsins (svo sem Norðurlandsmót í Kraftlyftingum eða Akureyarmót í Réttstöðulyftu). Á öðrum mótum geta aðilar búsettir annarsstaðar keppt til sigurs.
15. gr. Tillaga um að AFA verði lagt niður.
1. mgr. Tillögur um að leggja AFA niður má aðeins taka fyrir á löglegu ársþingi. Atkvæði 3/4 viðstaddra þarf til að samþykkja slíka tillögu.
2. mgr.  Komi til að félagið verði lagt niður munu eignir þess renna til Akureyrarbæjar til varðveislu, en afhendist síðar félagi ef stofnað yrði með hliðstæðum markmiðum.
16. gr. Norðurlandsmet og skráning þeirra.
1. mgr. Norðurlandsmet má einungis setja á mótum dæmdum af viðurkenndum dómurum, sem haldin eru eftir reglum.
17. gr. Lyfjapróf og viðurlög við brotum.
Falli keppandi á lyfjaprófi þá fer hann í 24 mánaða keppnisbann hjá AFA.
18. gr. Aflraunamaður og kraftlyftingamaður ársins.
Velja skal aflraunamann og kraftlyftingamann ársins árlega. Skal það gert á árlegu Kraftlyftingaþingi með leynilegri kosningu.
 
 
 
Powered by Vistaprint. Website Hosting for Small Businesses.